ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Frú forseti. Það eru slæm tíðindi sem berast frá Hafró varðandi þorskveiðar á næsta fiskveiðiári, ráðgjöfin. Á sama tíma erum við að ræða hér um strandveiðar, veiðigjöld og slíka þætti. Það vekur gríðarlega mikla furðu varðandi strandveiðarnar að málið fór ekki samráð og í atvinnuveganefnd er boðað að það verði einnar viku umsagnarfrestur. Þetta samhengi hluta sem er að skapast hér þarf miklu ítarlegri og stærri umræðu hér í þingsal og í atvinnuveganefnd til þess að ná utan um þá stöðu sem er að mótast. Þessi mál tengjast öll og hafa mikil áhrif á hvort annað. Sú mynd að skella inn strandveiðifrumvarpi með þessum fyrirvara þegar boðuð var reglugerð í vor og síðan nýtt frumvarp næsta vetur, þetta er náttúrlega ekki boðlegt, þessi tímalína og þau vinnubrögð sem eru höfð hér að leiðarljósi af hálfu meiri hluta þingsins.