156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[16:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hingað upp og verið að velta fyrir sér framhaldinu, hvað liggi fyrir varðandi þann hnút sem upp er kominn í þingstörfunum. Ég tek sömuleiðis undir með orðum hv. þm. Jóns Péturs Zimsen sem vakti máls á því að hér væri hægt að verja tímanum mun betur til mjög þarfra þingstarfa sem liggja fyrir okkur. Ég kom inn á það áðan að m.a. lægi það fyrir að við þyrftum að vanda mjög til verka í nefndarálitum í risastórum málum sem liggja fyrir þinginu. Við sjáum fram á þétta viku fram undan og það færi betur á því að í stað þess að við værum að kýta í þingsal að við myndum verja tímanum betur til þarfra þingstarfa.