156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:20]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Eftir á fjórða þúsund ræður og um 160 klukkutíma umræður er því haldið fram í ræðustóli Alþingis að það sé verið að taka málfrelsið af stjórnarandstöðunni. Eftir á fjórða þúsund ræður og um 160 klukkustundir er verið að halda því fram að stjórnarandstaðan hafi ekki málfrelsi hér á Alþingi. Það sem er verið að gera hér er að tryggja að alþingismenn geti greitt atkvæði um mál, jafnvel umdeild mál. Hér er vilji réttkjörins meiri hluta til þess að leiðrétta ákveðið kerfi sem hefur verið ranglátt. Hér er minni hluti sem vildi reyna að koma í veg fyrir að það væri hægt að greiða atkvæði um það mál. — Ég segi já.