156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

takmörkun umræðu.

[11:21]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Í tíð vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur gekk mikið á. Þeim lá mikið á með ýmis stór mál sem til óþurftar voru og voru umdeild; umsókn um aðild að Evrópusambandinu, stjórnarskrárbreytingar og þannig mætti lengi telja. Þeirri stjórn datt ekki í hug að fara fram með þeim hætti sem hér birtist af því að hæstv. forsætisráðherra verður að fá fram skattamálið sitt um framtíðarskatta í júlí. Í þeim stóru átakamálum sem voru í samfélaginu á þeim tíma datt þáverandi forsætisráðherra ekki í hug að leggja til það sem hér er verið að gera, enda hefði þáverandi forseti Alþingis ekki samþykkt það. Forseta var nefnilega ekki fullkomlega handstýrt af hæstv. forsætisráðherra. Við frekjugangi, fíflagangi og yfirgangi þessarar ríkisstjórnar segi ég nei.