takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Ég segi nei. Ég segi nei út af því að hér er ekkert nema leikrit búið að vera í gangi. Það er svo augljóst að það var ætlun meiri hlutans allan tímann að búa sér til ástæðu til þess að koma málinu óbreyttu í gegn með því að láta okkur tala of lengi. Það eru þau sem hafa verið upptekin af því hvað umræðan er löng af því að það hefur alltaf verið planið. Hæstv. forsætisráðherra boðaði ekki til síðasta fundar með formönnum fyrr en sömu mínútu og Íslandsmetinu var náð þannig að þetta er búið að vera einn spuni. Og þegar þau tala um lýðræði þá gleyma þau alveg hinu lýðræðislega ferli þar sem gert er ráð fyrir að unnið sé með málin í meðförum þingsins og gerð málamiðlun. En hér kemur hæstv. atvinnuvegaráðherra og segir: Málið er eins og við ætlum að það fari í gegn. Það stóð aldrei til að virða þessar þrjár umræður sem fara hér fram í þinginu. Það stóð aldrei til að virða allar þær fjölmörgu umsagnir og áhyggjur sem sveitarfélögin í landinu og atvinnulífið í heild sinni höfðu. Það er hinn lýðræðislegi ferill sem þessi ríkisstjórn ákvað fyrir fram að hunsa og ákvað fyrir fram að setja upp leikrit til að geta sett þessa atkvæðagreiðslu á hér í dag. — Ég segi nei, virðulegur forseti.