157. löggjafarþing — 13. fundur, 7. okt. 2025.
dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim.
89. mál
Frú forseti. Það er rétt sem kom fram hjá hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni að mér láðist að geta nafns hans sem hv. þingmanns sem skrifaði undir þetta nefndarálit. En það var annað nafn sem mér láðist einnig að geta og það var nafn hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Það er kannski nafn sem ég hefði síst átt að gleyma því að hann starfaði um skeið sem sauðfjárbóndi í Vestur-Húnavatnssýslu og var einmitt mjög áfram um að ljúka þessu máli hratt og vel.