157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:27]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar spurningar. Ég ætla bara að segja við hana eins og er að samstarf er það sem við erum að fara í og ég ætla að byrja á því að tala um svæðisskrifstofurnar sem var síðasta fyrirspurn hv. þingmanns. Þar erum við að fara í samstarf og ætlum einmitt ekki að taka frá skólastjórum samstarf og samvinnu. Við erum búin að fara í þrjá skóla. Ég er byrjaður á þeirri vegferð minni að fara í 27 skóla og mér skilst að ég verði þá fyrsti menntamálaráðherrann sem mun heimsækja alla 27 framhaldsskóla landsins. Við erum að gera það einmitt til að fara í samtal og samráð. Við erum búin að byggja ákveðna grind um það hvernig á að taka á því sem við erum að fara í í sambandi við svæðisskrifstofurnar. Við erum búin að átta okkur á því að það að gera ekki neitt er ekki valkostur, að sameina eins og hefur verið reynt er heldur ekki valkostur, það er búið að reyna það. Það er líka búið að reyna að búa til eitthvað og fastmóta og segja: Nú ætlum við bara að gera hlutina svona og þið bara kyngið því. Það er ekki minn stíll. Ég er að fara af stað í samtal og samráð. Eins og ég sagði í skóla í dag, þá ætla ég ekki að finna upp hjól sem er annaðhvort sprungið eða ónýtt. Ég ætla að fá skólasamfélagið í heild sinni til að hjálpa mér að búa til hjól sem virkar. Það kallar á samstarf og samtal. Það er ekki búið að festa eitt eða neitt niður um það hvort það verði ein eða sex svæðisskrifstofur. Það er einmitt það sem við erum að fara í samtal um.