157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:29]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það sem ég er einfaldlega að spyrja um er hvort þetta frumvarp byggi ekki bara á eldri forsendum. Ég er mjög hlynnt samstarfi framhaldsskólanna, svo það sé sagt hér, en það kemur skýrt fram í frumvarpinu, með leyfi forseta, að það er „heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans.“ Og að samningar af því tagi sem hafi veruleg áhrif á rekstur skuli staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefnda.

Það er verið að tala um reksturinn hérna og maður gefur sér að það séu skólameistarar sem eru þá að gera þessa samninga sem varða reksturinn, en síðan er verið að leggja til fjórar til sex svæðisskrifstofur sem eiga að taka við rekstrarhluta framhaldsskólanna, ef ég skil það rétt.

Í mínum huga er rekstrarleg samvinna bara einfaldlega ekki möguleg ef rekstrarleg ábyrgð er færð til þessara svæðisskrifstofa, þannig að það væri bara ágætt að fá að heyra það frá hæstv. ráðherra hvernig hann sér þetta fyrir sér, hvort þetta hreinlega stangist ekki á, hvort það hefði ekki þurft að endurskoða þetta orðalag í frumvarpinu sem lagt var fram hér í dag.