157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:36]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Já, þetta hjálpar mér nú ekki mikið. Ég er eiginlega enn ringlaðari eftir þetta svar. Í Kastljósþætti á þriðjudaginn fyrir tveimur vikum síðan kemur fram í máli hæstv. ráðherra að á svæðisskrifstofunum muni verða skólaþjónusta varðandi mögulega sálfræðinga, námsráðgjafa, fjármál og erlenda nemendur. Í þessu frumvarpi stendur: „[ … ] samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans.“ Dæmi um slíka þætti sem á að reka saman er stoð- og skólaþjónusta, sem eru þá sálfræðingar, námsráðgjafar og erlendir nemendur, eða samvinna um námsframboð, sem eru erlendir nemendur. Það getur ekki verið skýrara.

Mig langar að spyrja í seinna andsvari um annað. Það er þetta með að jafna tækifæri nemenda í innritunarferlinu. Hvernig er hægt að tala um að jafna tækifæri nemenda í innritunarferlinu ef einhverjir sem eru með minni námsgetu komast inn á kostnað þeirra sem eru með meiri námsgetu?