framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég verð bara að segja það og ítreka enn og aftur að við erum að fara í samtal og samráð. Við erum ekki að fara að taka neitt frá þeim skólum sem eru í dag með hjúkrunarfræðinga eða námsráðgjafa. Við viljum efla góða skóla og við viljum líka hjálpa öðrum skólum sem þurfa á hjálp að halda. Það er tilgangurinn. Þetta frumvarp er bara allt annars eðlis. Þetta frumvarp kom, eins og ég segi, fram á síðasta þingi og ég veit að bæði hv. þm. Jón Pétur Zimsen og Ingibjörg Isaksen þekkja þetta frumvarp. Þau eru búin að vera að vinna í þessu frumvarpi. Aftur á móti eru skólaskrifstofurnar, svæðisstöðvarnar sem við erum að fara að gera, ekki til þess ætlaðar að taka neitt frá skólanum sem þegar er til staðar, heldur er hugsunin að hjálpa þeim skólum sem þurfa á hjálp að halda.