framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, þetta kom upp líka í fyrravetur þegar málið kom inn, þá kom upp einmitt þessi umræða og þá var farið í að kanna þetta og nemendafélögin höfðu áhyggjur af þessu. Þau verða áfram sjálfstæð. Við erum bara að skerpa á þeim möguleika að það sé hægt að gera eitthvað þegar eitthvað óvænt kemur upp á. Við erum bara að tryggja það að ef eitthvað kemur upp á sem veldur því að nemendafélögin eða skólastjóri eða kennarar þurfa að grípa inn í, þá sé það mögulegt. Við vitum að það er því miður ekki allt fullkomið í þessum heimi og við höfum rekið okkur á það að það hefur oft þurft eitthvert tæki til að geta gripið inn í strax ef eitthvað óvænt kemur upp á. Það er eingöngu tilgangurinn, ekki að skerða félögin eða neitt, heldur eingöngu að vera viðbúin ef eitthvað skeður.