157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:00]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans fínu ræðu um þetta mál. Við sitjum einmitt saman í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem þetta mál var til umræðu núna á vorþingi og er hér lagt fram með einhverjum örlitlum breytingum. Maður myndi nú ætla að í ljósi þess að hér er um endurflutning að ræða það hefði a.m.k. tekið breytingum út frá áformum hæstv. ráðherra varðandi stofnun svæðisskrifstofa. En í 2. gr. frumvarpsins er einmitt lagt til, með leyfi forseta:

„Framhaldsskólum er heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þegar um er að ræða samninga sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla skulu þeir staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefnda viðkomandi skóla.“

Síðan kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins á vefsíðu Stjórnarráðsins varðandi svæðisskrifstofurnar að þær eigi að „hafa það hlutverk að halda utan um rekstur skólanna og veita þeim stuðning og þjónustu“. Annars vegar er verið að fela stjórnendum þetta hlutverk varðandi reksturinn og að gera samninga um reksturinn, en hins vegar er verið að taka reksturinn frá skólastjórnendum og færa til svæðisskrifstofanna. Ef skólameistarar eiga ekki að gera samningana, hver á þá að gera samningana? Ef þetta frumvarp hér verður samþykkt með þessum áherslum, eru þá svæðisskrifstofurnar kannski bara alger óþarfi?