157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:42]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er að mörgu leyti sammála, ég held að við séum flestöll á þeim stað að við viljum gera gott framhaldsskólakerfi betra og við viljum vera í samtali og samráði. Þar af leiðandi er það einmitt tilgangur minn og ég tel að þetta frumvarp muni bæta. Það kom upp umræða um t.d. lög og reglur í framhaldsskólum, auðvitað á það að gilda um alla starfsemi skólans að því leyti sem hún fer fram innan skólakerfisins. Ef við tökum fræðsluskyldu og annað þá erum við t.d. að fara að efla Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og hún verður þá bara eitt með þessum svæðisskrifstofum. Við erum nefnilega einmitt að fara að útfæra svæðisskrifstofurnar með samráði og samtali. Við ætlum ekki að rífa góða hluti frá framhaldsskólanum eða hindra á einhvern hátt það góða starf sem þar fer fram.