157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[17:45]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir prýðisgóða ræðu. Ég verð þó að viðurkenna að það kemur aðeins á óvart hversu mikið þingmenn minni hlutans dvelja við þessar svæðisskrifstofur, sem eru á einhvers konar samráðsstigi, núna í umfjöllun um þetta frumvarp. En ég tel af nægu að taka í þessu frumvarpi enda er það gott og hugsanlega er það ástæðan fyrir því af hverju umræðan snýst svolítið um þessar hugmyndir og þetta samráð við framhaldsskólana, að þingmenn séu sáttir við frumvarpið sem við erum að fjalla um hér.

Það voru tveir punktar sem ég heyrði að hv. þingmaður kom inn á og staldraði við og þetta voru sömu tveir punktar og fengu svolítið mikla umfjöllun á vorþinginu. Mig langar að byrja á að koma aðeins inn á nemendafélögin, við eyddum svolítið miklum tíma í þau. Ég tek bara heils hugar undir að mér finnst skipta miklu máli að orðalagið sé þannig að við stöndum áfram vörð um sjálfstæði nemendafélaganna, þau séu sjálfstæð félög, þó að það sé samt alveg skýrt, eins og í 39. gr. laga um framhaldsskóla, að nemendafélög starfa á ábyrgð skólameistara. Þau eru vissulega hluti af skólanum og þarna er verið að setja inn, kom fram í samtali við ráðuneytið, þessa grein undir 14. gr. til að tryggja að ef upp koma þessi EKKO-mál, einhver kynferðisbrot eða alvarleg ofbeldisbrot í starfi nemendafélaganna, þá sé hægt að beita þessum viðurlögum sem koma svo í næstu greinum í 14. gr., varðandi þau brot líka. Það sé ekki þannig að ef eitthvað gerist í starfi nemendafélaganna þá sé það einhvern veginn fyrir utan lögsögu framhaldsskólanna og svo þurfa kannski nemendur að sitja hlið við hlið daginn eftir. Ég væri til að heyra, með þessar upplýsingar, hver afstaða þingmannsins er til þessara breytinga.

Hitt er varðandi þessa heimild við innritunina, að horfa til fleiri þátta. Mér finnst mikilvægt og vil byrja á að segja það að hér er náttúrlega verið að setja inn heimild sem umboðsmaður Alþingis úrskurðaði 2010 að þyrfti að setja í lög þar sem framhaldsskólarnir væru nú þegar að horfa til fleiri þátta. Ég kem kannski aðeins betur inn á þessa heimild í seinni ræðu.