framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar ræðu og skelli mér strax inn í samráð og samtöl við t.d. Samtök iðnaðarins um framhaldsskóla sem ég var nýlega í ráðuneytinu að ræða við. Það var mjög gott samtal og virkilega verið að taka á verknámi. Eins og hún veit þá erum við að fara af stað, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er byrjaður, það var bara verið að reisa límtrésbitana á laugardaginn þegar ég kíkti í 50 ára afmæli Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Við erum líka að fara að byggja á Suðurnesjum, við erum að fara að byggja á Ísafirði, við erum að fara að byggja á Sauðárkróki og við erum að fara að byggja á Akureyri. Það er engin forgangsröðun, einn, tveir eða þrír heldur á bara fara af stað um leið og hönnun er tilbúin og annað og úttekt á því hvernig best er að gera þetta, þá er bara að fara af stað og það er verið að flýta því eins og hægt er.
Frumvarp um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu — ég ákvað að bíða aðeins með það um leið og ég vissi að ég væri að að fara í þessa vegferð að tala við 27 skóla og síðan var mér bent á að það væri ýmislegt sem við þyrftum að skoða betur. Ég stefni að því að koma með frumvarpið, vonandi tekst mér það í vor eða strax næsta haust, vegna þess að ég vil gera það vel, vanda til verka því að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er með Frigg gagnagrunninn og það er ýmislegt þarna inni sem við þurfum að vanda virkilega vel til verka með. Ég sé að tíminn er búinn þannig að ég verð að svara hinu í seinna andsvarinu.