157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[18:18]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þessar upplýsingar. Það er einmitt afar mikilvægt, eins og hann kemur inn á, að það sé samráð og að það séu samtöl. Nú hef ég verið að ræða við aðila sem eru á gólfinu og ég veit að Kennarasambandið t.d. og fleiri aðilar eru einmitt að kalla svolítið eftir því að hæstv. ráðherra eigi mjög gott og náið samtal við stéttina sjálfa vegna þess að það er afar mikilvægt að það sé ekki verið að fara fram með einhver áform sem mæta síðan mikilli mótspyrnu, eins og t.d. með svæðisskrifstofurnar. Það er erfiðara að fara af stað með slík verkefni og ætla að ná árangri þegar maður mætir mótspyrnu frá fólkinu sem einmitt á að vinna eftir slíkum áformum. Það sama gildir líka varðandi símabann, símahvíld eða símafrí eða hvað skal kalla það, þá hvet ég hæstv. ráðherra til að eiga samtal við fagfólkið því það þekkir til og veit nákvæmlega hvernig allt er í pottinn búið. Ég tel að sveitarfélögin sem hafa hingað til verið að taka á þessum málum sjálf í samráði við skólana hafi verið að gera það vel, að það þurfi kannski ekki lagafrumvarp þess efnis en auðvitað er alltaf jákvætt að reyna að samræma eitthvað. En það er nú þannig að skólarnir eru afar ólíkir eftir því hvar þeir eru staddir á landinu, hvort sem það er stærð eða eitthvað annað og hvernig þeir eru mannaðir, þannig að það er afar mikilvægt líka að það sé svigrúm til einhverra breytinga, það sé ekki of fast form.

Ég fagna þessu með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, að það eigi að vanda til verka en ég veit að það er búið að vera að vinna þetta mál mjög mikið og mér skildist að það hefði verið tilbúið. Það hefur verið ákall eftir því einmitt frá fagaðilum að þetta mál komi fram til þess að efla Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Mér finnst reyndar vont að heyra að það eigi jafnvel að bíða í heilt ár eftir því að fá það frumvarp fram því að ég veit að það er full þörf á því, helst nú þegar.