157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[18:20]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef það hefði verið tilbúið þá hefði ég komið með það inn en það er því miður ekki alveg tilbúið og það voru þarna ýmis atriði sem við þurftum að skoða betur. Eins og hún veit er þetta viðamikið frumvarp sem er kallað virkilega eftir og þess vegna ber okkur líka að vanda vel til verka.

Ég ætla að segja í sambandi við svæðisskrifstofurnar og í sambandi við það að rekstrarábyrgð verði tekin frá skólastjórum að það stendur ekki til að taka alla rekstrarábyrgð frá skólastjórnendum. Þetta er samtal sem við erum að fara í. Ég hef heyrt í skólastjórum og skólastjórnendum sem segja að þeir séu að kafna í fjármálastjórnun, þeir þurfi skjalastjórnun og ýmsir hlutir sem þeir vildu hafa annars staðar. Ég hef heyrt í kennurum og ég er búinn að heyra í starfsfólki skólanna. Ég er þegar búinn að fara í þrjá skóla og ég segi fyrir mitt leyti að þessi gífurlega óánægja með þessar svæðisskrifstofur er ekki að birtast mér, heldur er ég mjög ánægður með það samtal sem við erum að eiga. Við ætlum einmitt að fara í alla skólana og eiga öll þessi samtöl, taka allt sem kemur þar og svo geta líka allir kennarar og starfsfólk skólanna og allir sett athugasemdir inn í ákveðið app sem við erum með. Bara t.d. í samtali við skólameistara fengum við 400 athugasemdir sem við erum að vinna úr, sem er bara frábært og mjög góðar athugasemdir. Það er einmitt svona samráð sem við viljum og við erum alls ekki að fara í eitthvað stríð við einn eða neinn. Við viljum efla skóla og gera góða skóla betri, við viljum sjá til þess að nemendur fái alla þá gæðakennslu sem þeir geta virkilega fengið og þess vegna viljum við líka sjá til þess að nemendur, skólar og starfsfólk komi með okkur í þessa vegferð.