157. löggjafarþing — 13. fundur,  7. okt. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[18:29]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar svör. Nú erum við að ræða þetta frumvarp. Samráð um svæðisskrifstofurnar er í gangi, er að hefjast, sem er gríðarlega mikilvægt. Þegar niðurstaðan úr þeirri vinnu í samtali við stjórnendur og fólk innan menntastofnananna er tilbúin þá mun koma í ljós hvernig þessu verður háttað.

Mig langaði einnig, virðulegur forseti, að koma með fyrirspurn til hv. þm. Ingibjargarr Isaksen. Hún kom hérna inn á áðan að hún hefði mótmælt því þegar umræðan var um sameiningu framhaldsskóla. Því vil ég spyrja hv. þingmann hvar og hvenær hún hefur viðhaft þann málflutning? Sú sem hér stendur fylgdist vel með fréttaflutningi og þessari umræðu almennt og það fór alveg fram hjá mér.