breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Fyrst vil ég koma inn á það sem hv. þingmaður nefndi varðandi EES-réttinn. Það eru nokkur ákvæði hérna inni, m.a. 6. gr., og þær breytingar sem við erum að gera á lögum um umhverfismat áætlana og framkvæmda sem snerta það. Þetta eru í rauninni breytingar sem fela í sér eins konar afhúðun, ef svo má segja. Sú breyting sem ég nefndi varðandi jarðhitann og matsskyldumörk þar er líka til þess fallin að færa regluverkið í rauninni aðeins nær í átt að lágmarkskröfum EES-réttarins. Að einhverju leyti hefur verið gengið lengra við innleiðingu hér þegar kemur að þessum umhverfismatsmörkum, þ.e. matsskilyrðismörkum. Við erum að hækka þau og einfalda þannig og gera það auðveldara að ráðast í jarðboranir.
Varðandi kvikasilfrið er það þannig að stefnt hefur verið að því að draga úr og hætta notkun á því í þessu samhengi innan Evrópusambandsins vegna þess að það er talið heilsuspillandi. Það eru rökin. Hv. þingmaður þarf ekki að hafa áhyggjur af því að við séum endilega að fara að draga kvikasilfur úr tönnunum á fólki. Þetta er eitthvað sem mætti skoða hvernig er, en það er í samræmi við réttarþróunina innan Evrópusambandsins að hætta að nota kvikasilfur til tannviðgerða og það eru heilsufarsleg rök fyrir því fyrst og fremst.