fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Nú er það þannig að það er öllum ljóst að bíll sem er seldur fyrir áramót mun ekki bera vörugjöld eftir áramót. Það er bara þessi einfalda staðreynd sem við höfum verið að benda á. Ég held að það væri mjög skynsamlegt — af því að hér hefur verið boðað að mögulega verði einhverjar breytingar fyrir 3. umræðu ef efnahags- og viðskiptanefnd á eftir að klára — að fá þetta skriflegt frá ráðuneytinu og rökstutt af hverju þeir telji ekki þörf á að uppfæra sitt mat.
Mig langar á síðustu sekúndum að spyrja hv. þingmann að einni einfaldri spurningu er varðar stöðugleikaregluna sem ég held að við séum nú komin yfir, svigrúmið hefur farið úr 500 millj. kr. í 1.500 og er núna í 1.820. Útgjöld fjárlaganefndar eru 1.893 millj. kr., ég held að efnahags- og viðskiptanefnd sé að netta sig nokkuð út: Hvert er svigrúmið í stöðugleikareglunni í aurum og krónum talið í 2. umræðu fjárlaga?