157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:03]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvar. Spurningin er um sanngirni. Það fer nú sennilega eftir því hvar í salnum menn sitja hvað þeim finnst sanngjarnt og hvað ekki. Það sem við höfum til að bera saman eru fjárlög við fjárlög. Síðan hækka fjárlög fyrir árið 2025, eins og hv. þingmaður benti réttilega á, og þau eru endurmetin. Ég vænti þess að það verði einhverjar breytingar á fjárlögum fyrir árið 2026 líka. Sá samanburður sem við höfum núna til að styðjast við er ekkert annað en fjárlög við fjárlög. Það er hreinasti samanburðurinn. Hvort það er sanngjarnt eða ekki — mér finnst það alla vega ekki ósanngjarnt en það er óeðlilegt að bera uppfærð fjárlög saman við önnur fjárlög. Bera verður uppfærða útfærslu saman við uppfærða útfærslu. Því finnst mér sanngjarnt að bera fjárlög saman við fjárlög.