fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum kærlega fyrir yfirgripsmikla ræðu og nefndarálit. Það er svo sem af ýmsu að taka en ég vildi staldra aðeins við þá tilfinningu þingmannsins að það væri ekki verið að horfa til landsbyggðarinnar í þessu frumvarpi. Ég held að það sé rangur lestur og vil vekja athygli á því sem nefndin bætir við sem er stóraukning til sóknaráætlana landshluta, styrking sjúkraflutninga með sérstakri áherslu á landsbyggðina, þjónusta fjarskiptalæknis, viðbyggingar við fjóra verknámsskóla standa fyrir dyrum, allir á landsbyggðinni, við erum að auka í ferðasjóð ÍSÍ og flugþróunarsjóð. Þá er ónefnd aukningin til viðhalds í vegamálum og nýframkvæmdum, sem eitt og sér er auðvitað risastórt atriði.