fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Já, aukningin í sóknaráætlunum er umtalsverð en það er líka breyting á verklagi að færa ákvarðanirnar nær vettvangi þar sem fólk hefur enn þá betri innsýn í einstök verkefni og getur metið þau að verðleikum. En til að draga aðeins fram hvað það er mikil aukning í vegamálum, sem ég held að fólk átti sig almennt ekki á, þá er í fyrsta lagi verið að bæta við 4,5 milljörðum í viðhaldsmálin. Ef við tölum við almenning, hvar sem er á landinu, þá er það mjög nauðsynlegt og meira að segja spurning hvort það dugi til. En horfum á heildartöluna í samgöngum: Hún fer úr 56 milljörðum 2024 í ríkisreikningi í 62 milljarða á þessu ári og 73 á næsta ári. Ef við horfum á fjárfestinguna þá fer hún úr 28 milljörðum 2024 í 35 milljarða í ár út af aukningunni sem var gerð og fer í 43,5 milljarða á næsta ári. Þetta er einhver stærsta sókn í samgöngumálum sem sést hefur í fjárlögum.