157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:25]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir andsvar hæstv. ráðherra. Í hvaða farveg? Já, ég kom nú að því í mínu fyrra svari að það er kannski ekki hægt að búa til svona eina reglu fyrir alla. Ég minntist á minni stofnanir og stærri, þetta gæti kannski verið breytilegt. En það er líka hægt að horfa til annarra hluta eins og t.d. — ég hef nú tekið eftir því sjálfur í mínum störfum að það er búið að leggja alls kyns kvaðir, verkefni, störf og starfsemi á hendur opinbera geirans. Alls kyns, ég veit ekki hvað ég á að nefna; það er persónuverndarfulltrúi, það er jafnréttisfulltrúi, það er einhver sem sér um grænu skrefin, það er einhver sem sér um upplýsingarnar og annar sem sér um tölvurnar. Svona gæti ég líklega haldið svolítið áfram ef ég fengi tíma til að skrifa þetta niður. Ég get sent hæstv. ráðherra þetta ef hann óskar eftir því. En alls kyns svona störf, sum þeirra — og við getum verið ósammála um það hæstv. ráðherra — eru hugsanlega óþörf, öðrum má kannski draga úr og þriðju má kannski samnýta í ákveðinni starfsemi á milli stofnananna, þ.e. eins og persónuverndarfulltrúa. Það er gert sums staðar, ég veit það vel, að samnýta störf. Ég held að það sé alveg ótal tækifæri og ég er alveg handviss um að hæstv. ráðherra geri sér fulla grein fyrir því að það er mikið verk að vinna. Þótt ég hafi verið með sérstakar tillögur, eins og við loftslagsaðgerðunum eða hælisleitendunum, um upphæðir eða fjárlagaliði, þá held ég að hæstv. ráðherra átti sig á því hvað ég er að meina þegar ég kem að þessum málum, það hefur verið það mikið um þau rætt. En ég held að það sé helst mikil tækifæri að finna eins og í loftslagsmálum. Þar eru ótal verkefni. Það er verið að útdeila fjármunum skattgreiðenda án þess að það sé nægilega mikið eftirlit með þeim.