157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:09]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar og segja um sóknaráætlanirnar að það má segja að litið hafi verið til umfangsins af þeim beiðnum sem komu. En ég held að við eigum að forðast það að halda að í því felist beinlínis einhver vísindi. Það er ekki svo að fjárlaganefnd auglýsi á einhvern hátt, hvorki á áberandi né á óáberandi hátt, að til fjárlaganefndar megi leita með styrkbeiðnir; hvað þá að það sé tilgreint á hvaða sviðum og annað slíkt. Það getur vel verið að það séu fullt af verkefnum út um land sem eru jafn góð eða jafnvel betri en þau sem fjárlaganefnd fær erindi um.

Afstaða meiri hluta fjárlaganefndar var sú að mat á verkefnum væri best komið sem næst vettvangi. Hvort þetta sé rétta upphæðin; ég held að við eigum bara að bíða og sjá með að fella dóma um það og eiga í samtali við landshlutana um hvort þetta sé gott fyrirkomulag. Það mætti meira að segja hugsa sér, ef landshlutunum finnst þetta gott fyrirkomulag, að sveitarfélögin sem að landshlutasamtökunum standa gætu komið með einhvers konar mótframlög inn í þessa styrkjapotta og standa saman þannig að það væru ekki bara fjármunir úr ríkissjóði sem yrðu til að efla þá. Það hafa auðvitað verið ákveðin brögð að því að landshlutarnir hafi verið að bæta þarna inn. Ég get ekki svarað því en hlakka til að tala um hagvöxt á mann hér í seinna andsvarinu af því að mig þrýtur tími til að gera það núna.