157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:11]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Með hagvöxt á mann og síðasta áratuginn; ég ætla að bæta aðeins í þá umræðu. Þetta er stóra málið í íslenskri hagstjórn undanfarinna ára. Þarna hefur orðið gríðarlega hröð breyting á síðustu árum. Ég man hagtölurnar fyrir 1952 t.d.; þá voru sjávarafurðir 92% af útflutningi íslensku þjóðarinnar hérna á árunum eftir stríð. Nú er sjávarútvegurinn 20%, ferðaþjónustan 30–35%, hún fór árið 2018 yfir 40%, í fyrra var hún 32%, ef ég man rétt. Við erum með sjávarútveginn 20%, stóriðjuna svona 15%, svo er það þessi stóra breyting á undanförnum árum, þetta gríðarlega mikla nýsköpunarverkefni sem var farið í; lyfjaiðnaður, nýsköpun og annað. Sá iðnaður hefur verið að styrkjast mjög, eða sá hluti út frá útflutningstekjum. En það verður fróðlegt (Forseti hringir.) að heyra um þetta vegna þess að ég held að það sé gert mjög lítið úr því hvað gert hefur verið ótrúlega mikið á síðustu tíu árum varðandi þessi mál.