fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Hann fór vítt yfir og sömuleiðis í einstaka málaflokka og það er svo sem af nógu að taka. Hv. þingmaður nefndi að þetta væru fyrst og fremst aðhaldsfjárlög. Það olli mér svolitlum áhyggjum. Þetta er aukning um 142 milljarða á milli ára. Hvernig eru þá fjárlög sem eru ekki aðhaldsfjárlög? Það er held ég eitthvað alveg rosalegt. Þetta er víst alveg nógu slæmt en bara til samanburðar þá jukust útgjöld um einhverja 75 milljarða þar á undan.
Sömuleiðis þá spyr ég hv. þingmann: Formaður Samfylkingar, hæstv. forsætisráðherra, var mjög skýr á því að hún ætlaði ekki að hækka skatta fyrir kosningarnar. Hvað breyttist? Ég held að við þurfum ekkert að fjölyrða um að það er verið að hækka skatta á almenning í landinu og almenningur mun finna fyrir því í buddunni eftir áramótin, ef svo fer fram sem horfir.
Svo kannski í þriðja lagi, af því að hv. þingmaður talaði um varnarmálin. Ég er með skrifað svar fyrir fram mig frá utanríkisráðuneytinu og af því að við fengum þær upplýsingar að þetta væru um 24 milljarðar kr. þegar allt væri tekið inn í fjárlögunum en það er engin sundurgreining á því þrátt fyrir að við biðjum um það. Er þetta eitthvað sem hv. þingmaður þekkir eða veit hvað er í gangi? Við höfum ekki fengið nein svör hvað þetta varðar, ekki öll nefndin í það minnsta, kannski er meiri hlutinn eitthvað inn í þessu.