fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Fyrst varðandi varnarmálin þá hvetur meiri hlutinn til þess að áætlanagerðinni verði flýtt og línur lagðar til framtíðar, helst í aðdraganda fjármálaáætlunar. Við erum sammála um það. Það er hins vegar ekkert tekið út fyrir sviga varðandi stöðugleikaregluna í þessum fjárlögum sem tengist varnarmálum, ekki neitt. Það er alveg skýrt. Það hefði komið fram í því yfirliti sem við notum ef svo hefði orðið og ég skal sannarlega koma með þingmanninum og öðrum í að útfæra þetta þannig að sæmileg sátt geti verið um það til framtíðar.
Varðandi landsbyggðina og framlög þar þá bið ég hv. þingmenn að fara aðeins í gegnum það hvað kemur fyrst upp á fundum þegar þeir hafa verið að tala við venjulegt fólk sem er að sinna sínu daglega lífi. Vegir, viðhald, snjómokstur, já, öryggisþættir eins og sjúkraflutningar. Við erum að auka viðhaldsfé milli ára í fjárlögum um 4,5 milljarða. Við erum að auka nýfjárfestingar í samgöngum, ef við tökum 2024, úr 28 milljörðum í 43,5 milljarða á næsta ári, það er meira en 50% aukning. Þarna er verið að gera það sem kallað hefur verið eftir á fundi eftir fund, ekki satt? Það er þess vegna sem ég segi kinnroðalaust að það sé ekki mín tilfinning, og mér finnst það ekki lýsa þessum fjárlögum, að það sé litið fram hjá landsbyggðinni. Þvert á móti er verið að svara þarna lykilatriðum sem kallað er eftir. Sjúkraflutningar eru þar á meðal þó að það séu ekki stóru tölurnar, ég átta mig alveg á því. En hafandi unnið, þá tiltölulega nýútskrifaður læknir, á vakt á landsbyggðinni þá (Forseti hringir.) veit ég að fjarskiptalæknir sem getur verið í stöðugu sambandi á bak við þig getur verið mikið öryggismál fyrir fólk, líka þannig að það vilji ráða sig einhvers staðar eitt í héraði. Það er líka landsbyggðarmál.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar enn og aftur við hv. þingmenn að þeir virði ræðutíma.)