157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:58]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég hef verulegar áhyggjur af því ef hv. þingmaður hefur ekki farið vel yfir þær umsagnir sem komu inn fyrir nefndina. Allir þeir gestir sem komu fyrir nefndina hafa líka lýst því að kílómetragjaldið og vörugjöldin hafi veruleg áhrif, ég tala nú ekki um þau gjöld sem hafa komið áður á sjávarútveginn og fleiri gjöld sem ríkisstjórnin er búin að hækka, 3,7% gjaldahækkanir og svo mætti lengi telja. Það er búið að ræða það svo oft í hv. efnahags- og viðskiptanefnd hvernig kílómetragjaldið er ekkert annað en landsbyggðarskattur, ekki út af einkabílum heldur af því að flutningskostnaðurinn vegna aðfanga hækkar. Til dæmis hjá Örnu í Bolungarvík, í kjördæmi hv. þingmanns, það verður mun dýrara að flytja afurðirnar þaðan til Reykjavíkur og miklu dýrara að flytja aðföngin út á land. Vestfirðir treysta á að ferðamenn komi með bílaleigubílum. (Forseti hringir.) Nú verður það allt miklu dýrara, bæði út af vörugjöldunum og kílómetragjaldi. Þetta magnar hvort annað upp. Bílaleigubílarnir sem Vestri, íþróttafélagið á Ísafirði, notar til að fara í keppnir (Forseti hringir.) munu hækka bæði út af kílómetragjaldinu og vörugjöldunum. Þetta er hreinn og beinn landsbyggðaratvinnuskattur.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmann um að virða ræðutímann.)