kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Fyrirsjáanleiki. Það hvernig staðið er að málum er enn eitt dæmið um slæma stjórnsýslu. Kannski erum við að klára fjárlög í kringum 20. desember, tíu dögum fyrir áramót og ný skattheimta tekur gildi ellefu dögum síðar. Þetta er enn eitt málið. Það væri fróðlegt að vita hvort hv. þingmaður sé ekki þeirrar skoðunar að við þurfum að breyta þessari nálgun. Við erum að ræða í íslensku samhengi risastórt mál vegna þess að íslenskt samhengi er bara allt annað í þessu máli heldur en við myndum sjá annars staðar í Evrópu. Þá er ég að tala um ferðaþjónustuna, stærstu atvinnugrein landsins. 60–65% af öllum erlendum ferðamönnum sem sækja Ísland heim leigja sér bíl. Þess vegna hefur sá sem hér stendur alltaf haft miklar áhyggjur af þessu máli. Þetta mun koma illa því sem skapar forsendur fyrir dreifingu erlendra ferðamanna um allt Ísland. Þetta verður nefnilega íslenskri ferðaþjónustu til tjóns, sérstaklega á þeim svæðum sem fjærst standa höfuðborgarsvæðinu.