kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Kannski í framhaldinu er það vangavelta hvort við gætum, eftir alla þessa vegferð í nefndinni, verið í betri samningsstöðu gagnvart meiri hlutanum ef þau væru ekki svona háð því að fá þessa 3,3 milljarða til að standast skattareglurnar sínar, hvort það myndi þá ekki breytast töluvert. Það var annars vegar það og svo langaði mig líka aðeins að koma inn á hagaðila, hvort hv. þingmaður hafi ekki tekið eftir því að hagaðilarnir voru miklu áhyggjufyllri og harðari í sinni andstöðu nú þegar þetta kom aftur samhliða vörugjöldunum heldur en í vor þegar það var einungis verið að tala um kílómetragjaldið.