157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:17]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og svarið í leiðinni. Varðandi þessa afturvirkni: Nei, það er auðvitað óeðlilegt og ekki vaninn, að mér skilst, hér á þingi að setja afturvirk lög og hvað þá er varða skatta á eina atvinnugrein sem er einmitt búin að selja sinn varning, ef við getum orðað það þannig, á liðnu ári út frá vissum forsendum. En hér er algerlega verið að breyta forsendunum og ferðaþjónustan hefur kallað eftir fyrirsjáanleika. Við höfum brennt okkur á því varðandi skattlagningu á skemmtiferðaskip og núverandi ríkisstjórnarflokkar gagnrýndu nú þáverandi stjórnvöld mikið fyrir það og hrósa sér nú af því að hafa leiðrétt það, sem er mjög jákvætt, en hins vegar eru þau ekki að læra af reynslunni og hlusta á ferðaþjónustuna sem kallar einmitt eftir fyrirsjáanleika, kallar eftir því að það verði a.m.k. 12–24 mánaða fyrirsjáanleiki þegar verið er að taka ákvarðanir varðandi skattlagningu vegna þess einmitt að hún er að selja fram í tímann. Þetta mun hafa veruleg áhrif og mér finnst það umhugsunarvert þegar verið er að leggja á afturvirka skatta.