breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Hér ræðum við hinn alræmda bandorm sem almenningur er kannski ekki allur með á hreinu en fyrir þeim sem eru að fylgjast með ætla ég að reyna að útskýra aðeins aðdragandann að öllu þessu máli og hugtakanotkun ríkisstjórnarinnar. Hér höfum við oft heyrt í pontu að fimm vaxtalækkanir hafi verið á tímabili ríkisstjórnarinnar og 1,75% lækkun vaxta. Og hvers vegna skyldi þetta orðfæri vera notað, fimm vaxtalækkanir, 1,75%? Til þess að slá ryki í augu almennings og eigna sér í raun eitthvað sem er ekki þeirra. Það getur að sjálfsögðu verið pirrandi fyrir fólkið sem er að fylgjast með að hér koma upp ræðumenn hver á fætur öðrum og einn segir eitt og hinn segir annað, en þessu er hægt að fletta upp. Eftir að þing hófst í janúar 2025 þá hefur í raun orðið 1% lækkun á vöxtum. Hvers vegna er það? Það er vegna þess að hagkerfið hefur snarkólnað, einn, tveir og þrír, og það er í raun ekki hægt að kenna einum eða neinum um það beint. Hér erum við að tala um tolla á Elkem, bilun á Grundartanga, minni aflaheimildir og fall Play t.d. Þetta veldur því að hagkerfið kólnar og fyrir vikið lækka vextir til að keyra það aftur í gang að einhverju leyti. Hin 0,75%, sú vaxtalækkun var komin áður en þingið hófst í janúar þannig að ríkisstjórnin getur ekki eignað sér þetta.
Mig langar líka að minna á kosningaloforðin sem þessi skattastjórn gaf fyrir kosningar. Það var talað um að hér yrðu skattar ekki hækkaðir á venjulegt fólk, ekki hækkaðir. Núna þegar mörg mál hér verða knúin áfram í meirihlutaræði mun fólk finna fyrir því í pyngjunni að skattar hafa hækkað. Gárungarnir hafa talað um að það séu fjórir einstaklingar sem lendi ekki í skattahækkunum, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst Björnsson. Þetta fólk lendi ekki í skattahækkunum, og hvers vegna? Jú, þetta fólk er aðalleikarar í þáttunum Venjulegt fólk þannig að þetta er eini hópurinn sem lendir í rauninni ekki í skattahækkunum því að allir aðrir lenda í þeim. Auðvitað er þetta grafalvarlegt og menn eiga ekki að hafa þetta í flimtingum en það er óþolandi að kjósendur geti ekki treyst því sem er sagt fyrir kosningar. Að sjálfsögðu skilur sá sem hér stendur að í samstarfi flokka þurfa menn að einhverju leyti að beygja af leið en þá eiga menn bara að viðurkenna það og kalla skattahækkanir réttum orðum. Það er stórmannlegt. Að reyna að fela skattahækkanir í alls konar orðagjálfri og nýyrðum til að blekkja í raun er ekki gott. Aðhald á tekjuhlið, skattaglufur, leiðréttingar og hvað það sem ríkisstjórnin segir eru skattahækkanir. Þetta kemur við almenning og nú er það ferðaþjónustan sem liggur vel við höggi og fær höggið. Hvernig stendur ferðaþjónustan í dag? — Ég sé að tíminn er að klárast þannig að ég bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá og get ég þá farið yfir stöðuna í ferðaþjónustunni sem er vægast sagt svört. Hún hrópar á hjálp og við hér á Alþingi reynum að sinna því kalli.