157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[13:53]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að þakka nefndarmönnum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir sérstaklega gott samstarf. Vinna nefndarinnar hefur verið viðamikil og umdeild mál til umræðu eins og hefur komið í ljós í lengstu 2. umræðu um bandorm sem hér hefur átt sér stað. Málefni nefndarinnar hafa í rauninni litað alla umræðu hér í þingsal síðustu vikurnar og ég kvarta ekki undan því. Þetta hefur bara dýpkað þekkingu þingmanna á málum efnahags- og viðskiptanefndar. Enn og aftur vil ég þakka nefndarmönnum fyrir málefnalega og góða vinnu og fyrir að hafa tekist á við þau verkefni sem þeir hafa fengið af metnaði fyrir hönd Íslands. Enn og aftur: Takk, kæra efnahags- og viðskiptanefnd.