Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það var á tímum kalda stríðsins í borginni Múrmansk í Norður-Rússlandi að Mikael Gorbachev sagði hin fleygu orð: Látum norðurhjara heimsins verða svæði friðar. Þar með hvatti hann til samvinnu í stað hernaðarkapphlaups sem átti eftir að leiða til stofnunar Norðurskautsráðsins sem hefur verið öflugt. Það er ekki lengra síðan en árið 2021 að allir utanríkisráðherrar, líka frá Rússlandi og Bandaríkjunum, komu hingað til lands til að ræða samvinnu. Síðan þá hefur staða heimsmálanna hins vegar gjörbreyst eins og við þekkjum. Við höfum séð áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á lömun Norðurskautsráðsins. Síðan þá hefur starfsemin aðeins tekið við sér og það er kaldhæðnislegt að í dag eru það Grænlendingar sem leiða starfsemina fyrir hönd Dana á sama tíma og þeir eru orðnir miðja í norðurslóðamálunum, ekki vegna samvinnu heldur vegna ágreinings. Þar með er kominn fleygur í samskipti milli Rússlands og hinna sjö norðurslóðaríkjanna en einnig á milli NATO-ríkja. Við sáum þennan ágreining á fundinum í Bandaríkjunum í gær og hann var sögulegur. Hann var sögulegur vegna þess að þar birtust yfirlýsingar um að Bandaríkin telji sig þurfa að taka yfir annað landsvæði til að tryggja öryggi, ekki á samfélagsmiðlum, ekki í fjölmiðlum heldur á formlegum fundi.
Víst er að óvissa í málefnum norðurslóða mun áfram aukast og mikilvægi þeirra sömuleiðis. Ég vil því kalla eftir því við ríkisstjórn landsins að það sé aukin upplýsingagjöf hér inn á þing um þessi mál og ég vil kalla eftir því að utanríkisþjónustan, ekki síst, kortleggi samskipti innan viðskipta, vísinda og fleiri aðila því að hefðbundin diplómasía (Forseti hringir.) í núverandi heimi er veik. Hefðbundin diplómasía er veik og við þurfum að tryggja að boðleiðir geti verið sem fjölbreyttastar (Forseti hringir.) þegar reynir mögulega á okkar hagsmuni. Að lokum vil ég kalla eftir því að stjórnvöld beiti sér fyrir því að efla samskipti og styðja við Grænland. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Þetta eru okkar öryggishagsmunir. Sinnum þeim vel.
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)