samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað upp og spyrja margra góðra spurninga. Ég verð að hrósa hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir það að taka virkan þátt í umræðum um samgönguáætlun. Við mættum sjá meira af því að hæstv. ráðherrar taki hér virkan þátt, komi ekki bara hér og mæli fyrir málum og taki síðan engan þátt heldur taki virkan þátt í þessu. Ég þakka honum fyrir það.
Varðandi fjármögnun vil ég benda honum á það að hér inni liggur fyrir þingsályktunartillaga frá undirrituðum þingmanni ásamt 19 öðrum þingmönnum um Samgöngufélagið Þjóðbraut, þar sem nákvæmlega er útlistað hvernig svona stór innviðaverkefni eru fjármögnuð. Þar erum við t.d. að horfa til færeysku leiðarinnar þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til þess að kynna sér það alveg sérstaklega af því að það er ekki nóg að stofna eða segjast ætla að stofna eitthvert félag og svo eigi það að vera svona og hinsegin og á þann veginn og annan. Þarna liggur lausnin skýrt fyrir hæstv. ráðherra um það hvernig hann getur fjármagnað þessar stóru framkvæmdir. Það er nefnilega ekki þannig að þú sért að taka eitt af öðrum og láta þá annan fá eitthvað annað.
Í þessari þingsályktunartillögu er lausnin fyrir hæstv. ráðherra og ég skal glaður setjast niður með honum og ræða þessi mál og fara yfir það hvernig við getum byggt hér upp innviði eins og Færeyingar hafa gert og fleiri að færeyskri fyrirmynd. Fyrirmyndin að færeyska verkefninu og færeysku uppbyggingunni var náttúrlega Spölur, Hvalfjarðargöngin, þannig að við þurfum svo sem ekkert að fara til Færeyja. Við erum með fyrirmyndina fyrir framan okkur um það hvernig svona stór samgöngumannvirki hafa verið byggð upp. Svo er það nú bara þannig þegar hæstv. ráðherra kemur upp og talar um Fjarðagöng, að tengja saman Fjarðabyggð og Seyðisfjörð, þá er það svona svipað og ef þú segðir við mann í Ölfusi: Heyrðu, ég ætla að byggja göng á Stokkseyri og Eyrarbakka en reyndar þarftu enn þá að fara Hellisheiði eða um Þrengslin. Fjarðagöng leysa ekki eitt né neitt. Fjarðagöng eins og þau eru sett upp, (Forseti hringir.) þessi tvenn göng um firðina, leysa ekki þann vanda Austfirðinga (Forseti hringir.) að komast yfir fjallvegi innan svæðisins. (Forseti hringir.) Það er það sem ég hef gagnrýnt. Þetta eru göng sem eru ekki rannsökuð. Þetta eru göng sem eru sett þarna inn (Forseti hringir.) akkúrat í þessu andrúmi sem pólitískur leikur til að hleypa öðrum göngum fram fyrir.
(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutíma.)