útlendingar.
Virðulegur forseti. Hér úr ræðustól heyrðist gamall hljómur gamla Frjálslynda flokksins heitins sem virðist hafa öðlast nýtt líf í ríkisstjórn Íslands. Það er eiginlega alveg ótrúlegt og sorglegt að hér komi fyrrverandi þingmenn Frjálslynda flokksins heitins og séu að keyra í gegn mál sem er, virðulegur forseti, ég bara biðst velvirðingar en það er verið að keyra þetta mál áfram með ofbeldi. Það er verið að keyra þetta mál áfram með ofbeldi þar sem nefndinni er neitað um að fá forstjóra Fiskistofu, fulltrúa ráðuneytisins o.s.frv. Hér er þingmannamál sem meira að segja meiri hlutinn stendur ekki einhuga á bak við. Það er ótrúlegt að hér sé einhver gamall draugur Frjálslynda flokksins kominn sem eitthvert sérstakt stefnumál ríkisstjórnar Íslands í bullandi deilum innan þingsins. Ég bara biðla til þín, virðulegi forseti, að taka þetta mál af dagskrá. Þetta mál þarf að vinna betur.