157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[15:54]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég velti mjög fyrir mér hvar sérhagsmunirnir liggja í þessu máli. Þeir eru örugglega ekki hjá stórútgerðinni. Mig grunar að sérhagsmunirnir séu tengdir Flokki fólksins. Mér finnst það blasa við og mér finnst ábyrgð hinna stjórnarflokkanna ekki síðri, ábyrgð hinna stjórnarflokkanna á að láta þetta gerast vegna þess að þetta frumvarp — mér er nokk sama hvort það vanti einn og einn gest — þetta frumvarp er andstætt stjórnarskrárvörðum réttindum þeirra sem hafa þessi réttindi. Það er áhyggjuefnið. Svona mál á aldrei að koma til umræðu á þingi.