157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

útlendingar.

112. mál
[17:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér er komið á dagskrá mál sem samkvæmt atvinnuveganefnd hefur ekki fengið þá umfjöllun sem þarf. Á meðan við fréttum af því að verðbólga fari upp og atvinnuleysi aukist er þetta sérstök forgangsröðun og lyktar allverulega af sérhagsmunum. Hér erum við að tala um að fara að veiða grásleppu í sóknardagakerfi, hún sé tekin úr aflamarkskerfi og sjálfbærnivottun MSC er í hættu. Það er vottun sem veitir þeim sem selja hrognin úr grásleppunni betra verð og tryggir að veiðarnar séu sjálfbærar. Það er sérstakt að við, landið sem hefur verið með fínt aflamarkskerfi og reynt að passa upp á stofnana okkar, séum að fara þessa leið og hvað þá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.