almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það ber vel í veiði að fá hér í ræðu fulltrúa úr fjárlaganefnd sem hefur, frá því þessi ríkisstjórn var skrúfuð saman og lagði fram sín fyrstu fjárlagatengdu mál, verið undir linnulausri orrahríð vegna þess með hvaða hætti ríkisstjórnin kýs að ganga um lög um opinber fjármál. Hv. þingmaður hefur haldið ríkisstjórninni við efnið í þeim efnum. Hvað er til ráða, að mati hv. þingmanns? Ég velti því fyrir mér gagnvart því sem hér liggur fyrir. Það verður auðvitað ekki orðið við því en málið gengur til nefndar milli 2. og 3. umræðu. Ef svo færi að nefndin myndi óska eftir því að fá álit fjárlaganefndar á málinu eins og það liggur fyrir núna og áhrifum á fjármálaáætlun og fleira því tengt — hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að slík beiðni yrði meðhöndluð í fjárlaganefnd og hversu langan tíma telur hv. þingmaður að slík vinna tæki? Ég er bara að reyna að átta mig á þessu. Við erum hér í byrjun febrúar og það er bitamunur en ekki fjár hvort þetta mál klárast í boði Viðreisnar og Samfylkingar í febrúar eða apríl. Ég held að það væri í öllu falli skynsamlegt, í ljósi þess sem meira og minna allir umsagnaraðilar segja um málið, að fjárlaganefnd kæmi fram með mótaða afstöðu til þeirra áhrifa sem málið hefur á fjármálaáætlun til næstu ára og eftir atvikum önnur mál ríkisstjórnarinnar sem kunna að koma fram.