NATO-þingið 2025.
Virðulegur forseti. Stutta svarið er já og já. Það er hægt að finna það, ég segi ekki áþreifanlega en nánast áþreifanlega, að orð eins og jafnrétti, loftslag og annað verða á einhvern hátt viðkvæm í pólitísku samhengi í þeim væringum og þeirri spennu sem er í loftinu og það heyrir maður á vettvangi fleiri alþjóðastofnana, meira að segja þeirra sem eru að safna gögnum eins og OECD o.s.frv. En við höfum í samvinnu við Norðurlöndin haldið sérstaklega á lofti að þessi ályktun á jú afmæli, átti afmæli, þannig að um hana hefur verið fjallað þrátt fyrir þetta andrúmsloft. En það er eins og mig gruni að einhvern tímann hefði verið gert meira úr því, satt best að segja. Þær raddir eru kannski færri en áður þó að ég hafi ekki alveg samanburðinn þar sem ég hef bara verið þarna í eitt ár.