almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans seinni spurningu. Ég held að það svari ágætlega spurningu hans sem segir hér, og ég hvet hv. þingmann og geri ráð fyrir að hann sé jafnvel búinn að lesa grein eftir þá félaga, Gylfa Zoëga og Axel Hall:
„Bætur almannatrygginga hækka þá vegna launahækkana og síðan enn meira þegar verðbólga eykst, verðbólgan minnkar kaupmátt launafólks en ekki kaupmátt bótagreiðslna. Bótaþegar fá þannig bæði kjarabætur sem innstæða er fyrir og einnig innstæðulausar kjarabætur á meðan kaupmáttur launafólks eykst einungis ef innstæða er fyrir þeim.“
Þetta er kjarni málsins. Annar hópurinn er varinn en hinn ekki og sá hópur sem er ekki varinn er hópurinn sem á að borga fyrir þetta allt saman og það er vinnandi fólk í landinu, launþegar.