meðferð máls og úrskurður forseta.
Frú forseti. Já, undan hverju er ríkisstjórnin á flótta? Það eru auðvitað vextir og verðbólga og efnahagsmálin. Þetta er mjög sérkennilegt í vinnu þingsins hvernig þetta gerist varðandi þetta mál. En ég vildi aðeins koma aftur inn á afturvirkni sem er áhugaverð, það sem við höfum upplifað í dag. Það er búið að samþykkja skýrslubeiðni eða ósk um álit Lagastofnunar Háskóla Íslands á málinu og síðan líða tvær vikur og því er bara hent út. Meiri hluti nefndarinnar segir: Ókei, við hættum við þetta. Næst þegar maður kemur með skýrslubeiðni hérna, eins og maður hefur gert í gegnum árin, um eitthvað sem skiptir máli og þingið samþykkir það, er þá næsta vers að því verði bara hent út? Skýrslubeiðnir og beiðnir hér í þinginu, það líða kannski nokkrar vikur — er það næsta vers? Það er mjög alvarlegt hvernig þessi afturvirkni virðist vera að virka. Ég spyr frú forseta: (Forseti hringir.) Eru einhver dæmi í störfum nefnda um að það hafi verið unnið með þessum hætti eins og var samþykkt að gera í atvinnuveganefnd í morgun?