157. löggjafarþing — 79. fundur, 5. mars 2026.
leigubifreiðaakstur.
84. mál
Virðulegi forseti. Við ljúkum afgreiðslu þessa máls og ég vil nota tækifærið til að þakka nefndarmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir góða og málefnalega samvinnu við meðferð málsins. Jafnframt vil ég þakka nefndarritara, starfsfólki innviðaráðuneytis og öllum umsagnaraðilum fyrir vandaða vinnu og góðan stuðning við nefndina í þessu ferli. Ég segi því já.