þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið. Jú, þetta er einmitt á meðal áhyggna sem ég hef um þetta mál. Það þarf að vera alveg skýrt að ef við förum af stað í samningaviðræður og klárum þær þá þarf þetta að vera eitt af þeim markmiðum sem við göngum út frá. Það kemur einmitt fram í þingsályktunartillögunni að áfram verði hér öflugur íslenskur landbúnaður. Auðvitað felur það í sér að við þurfum á einhvern hátt að verja hann fyrir svona aðstæðum. Í mínum samtölum við bændur kemur mjög glögglega fram að þeir hafa verið fjársveltir um langa hríð, sérstaklega þegar kemur að styrkjaumhverfi nýrra bænda sem vantar fjárfestingarstuðning til að koma sér af stað. Kannski er eitthvað slíkt að finna í Evrópusambandinu, ég veit það ekki. Enginn annar hér veit það heldur. Við þurfum að leiða þetta fram. Það er bara heilmikið í þessu sem væri hægt að græða á en um leið þurfum við auðvitað að vernda okkar landbúnað. Það er mjög mikilvægt að við höfum innlenda matvælaframleiðslu, bæði vegna þess að við viljum halda byggð um allt land í sveitunum okkar og líka vegna matvælaöryggis.