veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.
Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um gríðarlega mikilvægt mál þar sem verið er að tryggja að íbúðarhúsnæði sé heimili fólks en ekki fjárfestingarvara. Það er verið að grípa inn í og tryggja að fólk sem á lögheimili í íbúð geti leigt hana út í skammtímaleigu til að ná að bjarga sér og hafa tekjur af íbúðinni þegar þannig ber undir. En þegar fólk á fjölda íbúða þá sé ég ekki af hverju það ætti að vera heimilt og stuðningur við slíkt. Það er heimilt að setja íbúðir í langtímaleigu en skammtímaleigumarkaðurinn hefur verið áskorun fyrir samfélagið og það þarf að bregðast við. Þess vegna er þetta gríðarlega mikilvægt mál og ég mun greiða atkvæði með þessu og gera grein fyrir atkvæði mínu á eftir.