157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:50]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna eða hugleiðingarnar varðandi áhrif nýsamþykktra laga um launavísitölutengingu í almannatryggingum. Ég ætla að leyfa mér að vera ósammála velflestu sem kom fram í hans ræðu eða andsvari og bendi á það að í dag er örorkulífeyrir um 416.000 kr. á mánuði, óskertur ellilífeyrir kringum 365.000 kr. en lágmarkslaun eða lægstu laun á vinnumarkaði eru í kringum 476.000 kr. Tölurnar sýna varðandi grunninn að kjaragliðnun hefur aukist síðustu ár og mest nemur hún heilum 110.000 kr. þannig að kjaragliðnun hefur sannarlega átt sér stað. Varðandi áhrif launavísitölutengingar þá hafa lægstu bætur örorku og ellilífeyris verið verðlagsbundnar með bara aðeins öðruvísi hætti. Launa- og verðlagsuppbætur almennt séð í fjármálaáætlun eru í kringum 45 milljarðar á ári og það er ekki minnst á það hjá fjármálaráði. En bara þessar launavísitölutengingar sem virðast eiga hug og hjarta fjármálaráðs eru í kringum 4–5 milljarðar eða um 10% af þeirri upphæð sem eru launa- og verðlagsuppbætur í fjármálaáætlun. Ef það á að setja hagkerfið á hliðina þá skil ég ekki þau rök.