utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir hlý orð í garð Flokks fólksins. Það er alveg rétt að það eru blendnar tilfinningar og mismunandi skoðanir innan Flokks fólksins í garð Evrópusambandsins og það á hugsanlega við um fleiri flokka. Ég held að það sé alger samstaða innan flokks hæstv. utanríkisráðherra en ég held að í flestum öðrum flokkum séu einhverjir með og aðrir á móti eins og kannski er bara hjá þjóðinni. Já, við treystum þjóðinni til að taka þessa afstöðu og höfum margoft sagt og höfum sagt alveg fyrir þetta kjörtímabil að það ætti að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta. Ég hef ekki mikið verið að velta fyrir mér kynslóðunum í þessu en ég held að það sé rétt að ef við höndlum þetta mál vel þá geti það skipt máli fyrir komandi kynslóðir að sjá að það sé hægt að taka á erfiðum málum og gera það á fallegan og réttan hátt. Ég ætla hins vegar ekki að hætta mér í umræðu um gjaldmiðilinn við hæstv. utanríkisráðherra.