utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni kærlega fyrir fyrirspurnina. Fyrst, þá hefur ekkert breyst frá því að við áttum hér samtal síðast um björgunarþyrluna á Akureyri. Við erum algjörlega sammála um það og ég veit ekki betur en að sú vinna sé bara í ákveðnu ferli, að geta unnið í því. Ég finn ekki fyrir öðru en að það sé samstaða um það. Varðandi það að það sé mikilvægt að hitta einmitt fulltrúa NATO og eiga samskipti við þá, þá er það alveg gríðarlega mikilvægt og ég held ég hafi nefnt það í ræðu minni í fyrra hvernig það hefur gleymst að upplýsa sveitarstjórnarmenn betur um þessa stöðu, hvar við erum stödd þegar kemur að varnar- og öryggismálum og ekki síst björgunarmálum. Sem ungur og óreyndur bæjarstjóri á sínum tíma þurfti ég að afla mér þessara upplýsinga algerlega sjálfur og náði reyndar í þær upplýsingar, aðallega frá erlendum aðilum frekar en innlendum sem var mjög athyglisvert. Ég tek því undir það að allar þessar upplýsingar skipta alveg gríðarlega miklu máli hvaðan sem þær koma en við þurfum að efla upplýsingaflæði innanlands og einhvern tímann ámálgaði ég þetta við hæstv. utanríkisráðherra.
Lágspennusvæði eða ekki lágspennusvæði. Ég kom inn á það og það er okkar metnaður, þingmannanefndarinnar, að reyna að tryggja að þetta sé lágspennusvæði og við tölum um þetta sem lágspennusvæði. Við erum alveg meðvituð um að það er gríðarlega mikil spenna á svæðinu og við þurfum að leggja okkur fram um að reyna að tryggja að þetta sé lágspennusvæði. Við horfum á það að NATO er varnarbandalag og á að tryggja öryggi en auðvitað hefur það verið ákveðin ógn við ákveðnar þjóðir sem hefur skapað þessa spennu. Það er svo sem ekkert nýtt, ekki síst varðandi kalda stríðið, það er bara endurvakið og við erum kannski pínulítið á sama stað og við vorum þegar það stóð hvað hæst.