jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Þessi breytingartillaga er í mínum huga ákveðin málamiðlun. Ég er ekki ginnkeypt fyrir því að auka verkefni stofnana ríkisins eins og þessi breytingartillaga gengur út á, þ.e. að Jafnréttisstofu sé gert skylt að taka á móti skýrslum frá fyrirtækjum úti í bæ. En þetta er hins vegar viðleitni til að koma til móts við þessa breytingu sem er að verða á þessu fyrirkomulagi, að gera fyrirtækjum það heimilt að skila slíkum skýrslum. Í því felst auðvitað aðhaldið. Ef það er eftirspurn eftir þessum upplýsingum frá fyrirtækjum, m.a. af hálfu launþega sem vilja vita hvernig fyrirtæki standa sig í þessu máli, þá er það hagur fyrirtækja að skila slíkum skýrslum inn. Hér er boðið upp á það að Jafnréttisstofu verði gert skylt að taka á móti slíkum skýrslum. Ég hefði haldið að þingheimur hefði a.m.k. getað sameinast um þetta millibilsástand, að það sé hægt að skila inn skýrslum en að fyrirtækjum verði ekki gert það skylt.